Mikill ótti við marðarvæðingu rúv!

\"Morgunblaðið hefur af því nokkrar áhyggjur að Mörður Árnason sé að lesa Passíusálmana í útvarpi allra landsmanna. Ég deili þeim áhyggjum. Ég er svo hræddur um að Mörður læði kratískum áróðri, jafnvel einhverjum ESB-stikkorðum inn í píslasögu Krists.\"

Þetta skrifar rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og óttast stórum, eins og Mogginn, að Krata-Mörður fari í lestri sínum á RÚV að snúa út úr fögrum versum: 

Líkt og ættir aleinn þú,

akurinn, gafstu LÍÚ.

Ást þína eiga þeir ríka,

hirða úr mér hjartað líka.

\"Nei, það er þjóðarvoði að hleypa Merði inn í viðtæki landsmanna,\" skrifar óttasleginn Guðmundur og fagnar því að Morgunblaðið vilji hefja rannsókn á þessari samansúrruðu spillingu sem þarna er í vændum:

Til Magnúsar Geirs voru mættir senn

máttarvöldin og stjórnarmenn.

Ráðherrar hæstir og ráðgjafar

rausnarmenn miklir um gáfnafar,

um lesarann og kenning hans

viðhöfðu orðbragð andskotans.

Já, Krafan er ein og aðeins ein: \"Burt með Mörð áður en hann nær að nýta sér þessa nýju valdastöðu sína til þess að koma okkur í fang Evrópusambandsins ellegar ofan í tóbaksdósir Össurar,\" skrifar Guðmundur, nákvæmlega jafn hneykslaður og Mogginn á Marðarvæðingu RÚV.