Mikill munur á ríki og sveitarfélögum

Ólafur Loftsson, sem var meðal gesta í útvarpsþætti Þjóðbrautar í útvarpi Hringbrautar í gærmorgun, sagði að sárlega vanti peninga til að unnt verði að halda kennurum í starfi í skólunum, og eins til að fá einhverra þeirra 5.500 sem hafa menntað sig til kennslu en starfa við annað, til að koma aftur í kennslustörf.

Svanfríður Jónasdóttir, sem var lengi vel bæjarstjóri á Dalvík, tekur þátt í umræðu um þetta, umræðu sem varð til vegna þáttarsins og þess se Ólafur sagði þar. „Sveitarfélögin hafa sett það mikla peninga í grunnskólana að íslenski grunnskólinn er einn sá best fjármagnaði í heimi. Ríkið rekur síðan framhaldsskólana og háskólana. Þekki fjárhagsstöðu beggja og mundi ekki vilja sjá grunnskólann á þeim stað!“ Skrifaði Svanfríður.

Svanfríður nýtir þarna tækifærið til að benda á hversu bág staða mergra framhaldsskóla og háskóla er.