Segja má að facebook hafi lagst á hliðina um helgina þar sem ýmis og ólík sjónarmið koma fram eftir að fyrrverandi ritstjóri DV birti færslu þar sem hann gagnrýndi Fréttablaðið og Jón Gnarr vegna ummæla og umfjöllunar um skólann á Núpi.
„Á forsíðu Fréttablaðsins í dag er gerð grímulaus tilraun til að skrímslavæða Núpsskóla í Dýrafirði og stimpla kennara og nemendur á árunum 1981-1983 sem nauðgara og níðinga. Þetta er byggt á sögu Jóns Gnarr sem lýsir með loðnum hætti tilvikum sem nægja til að stórskaða æru þeirra sem voru á Núpi á þessum árum. Vandinn er sá að þetta er allt sett fram í æsingarstíl og byggt á getgátum. Var sjálfur á Núpi á sínum tíma en varð aldrei var við neitt þessu líkt. Þetta var strangur skóli en án þess níðingsskapar sem nú er reynt að stimpla inn hjá þjóðinni. Framsetning Fréttablaðsins er einstaklega subbuleg og klár tilraun til að gera Núpsskóla að einskonar fyrirbrigði af sama toga og Breiðuvík. Jón Gnarr er ekki aðeins umfjöllunarefni Fréttablaðsins. Hann er jafnframt yfirmaður þar á bæ,“ skrifar Reynir Traustason, fyrrum ritstjóri DV og tengir við forsíðu Fréttablaðsins um helgina.
Gríðarlegur fjöldi fólks tekur til máls á umræðuþræði Reynis í kjölfarið og sýnist sitt hverjum. Meðal þungavigtarmanna sem líkar færslan má nefna Össur Skarphéðinsson og Eið Guðnason. Hinir eru einnig margir sem styðja Jón Gnarr og efnistök Fréttablaðsins og mislíkar færsla Reynis. Segja má að skoðanir rambi allt frá því að blaðið sé úthrópað og að Jón Gnarr sé sagður geðveikur til þess að umfjöllunin sé talin afar mikilvæg til að opna umræðu um það tabú sem ofbeldi hafi verið ekki alls fyrir löngu í ýmsum kimum samfélagsins. Nokkrir gagnrýna þó að fulltrúum skólans hafi ekki boðist að miðla sjónarhorni kennara.
Reynir Traustason er sjálfur í hópi þeirra sem bendir á að nú liggi stór hópur kennara undir grun um ofbeldi á Núpi, því Jón Gnarr nafngreini engan meintan ofbeldismanna í viðtalinu. Fram stígur fólk sem segist hafa verið á Núpi á sama tíma og Jón Gnarr. Guðmundur Ragnar Guðmundsson segist hafa verið á Núpi um leið og Jón en hafi ekki upplifað neitt af því sem Jón segi frá.
Aðrir benda á að umræðan sé dæmigert varnarviðbragð fyrir íslenskan veruleika, nálægðin sé svo mikil að menn hlaupi upp til handa og fóta og efist um frásagnir fórnarlamba ofbeldis ef fólk varð sjálft ekki vitni að ofbeldinu. A.m.k. tveir hafa stigið fram og tekið undir orð Jóns Gnarr, hvort tveggja gamlir nemendur á Núpi.