Mikill harmur þegar helgi féll frá: „ég veit þú elskaðir okkur öll“ - skilur eftir sig litla stelpu og unga konu - söfnun hrundið af stað fyrir barnið

„Ég veit þú elskaðir okkur öll meira en allt og ég gleymi aldrei kveðjukossinum þínum sem var svo einlægur, ég vildi óska þess að ég fengi að kyssa þig og knúsa einu sinni enn elsku gullið mitt. Þú varst ljósið í lífi okkar og það verður gríðarlega erfitt að lifa lífinu án þín. Hjartað okkar er mölbrotið. Við kveðjum besta vin okkar, pabba og sálufélaga með trega. Við elskum þig að eilífu. Þín Thelma Hulda, Ísold Vök og Gosi.“

Þetta segir Thelma Hulda Símonardóttir sem er aðeins 26 ára gömul. Sambýlismaður hennar og unnusti, Helgi Þór Helgeson lést þann 17. september síðastliðinn. Þau eignuðust fyrir tæpu ári myndarlega stúlku sem fékk nafnið Ísold Vök. Hrundið hefur verið af stað söfnun fyrir Thelmu og litlu stelpunnar hennar, til að styðja við bakið á þeim á þessum erfiðu tímum.

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir þá sem vilja styðja við litlu Ísold Vök.  Reikningur númer: 537 – 18 – 370 - Kennitala: 031018 – 2420 – Munum að margt smátt gerir eitt stórt.

\"\"

Thelma Hulda segir í minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu á morgun.

„Ég hef aldrei á ævinni kynnst jafn góðum og hlýjum manni eins og þér, fallega brosinu þínu og persónuleika gleymi ég aldrei. Daginn áður en þú fórst þá fékk ég að hlægja með þér einu sinni enn, fallega röddin þín og hlátur sem var svo smitandi [...] Fjölskyldan okkar var númer eitt, tvö og þrjú og þú minntir mig reglulega á það, allt annað mátti bíða.“

Thelma segir Helga hafa alltaf verið boðinn og búinn til að hjálpa öðrum og vildi að öllum liði vel. Hann hafi ekkert aumt mátt sjá. Þá segir Thelma: „Minnisstætt var þegar þú fórst út í búð að versla, þá komstu alltaf með eitthvað óvænt fyrir mig sem þú vissir að ég myndi vilja, ég var prinsessan þín.“

Thelma bætir við: „Ég gleymi því aldrei þegar þú áttir ekki pening til að kaupa afmælisgjöf handa mér, þá varstu ekki lengi að redda því og ákvaðst að prjóna húfu, það hreinlega lék allt í höndunum á þér.“

\"\"

Þá segir Thelma: „Þú varst besti pabbi sem hugsast getur og alltaf svo stoltur af litlu Ísoldinni þinni og ef ég var búin að vera í burtu þá hringdirðu sérstaklega í mig til að segja mér hvað hún væri orðin dugleg. Það var svo gaman að sjá hvað Ísold ljómaði öll þegar þú tókst hana í fangið, það var greinilegt hver var í uppáhaldi. Það er mikið tómarúm á heimilinu núna þegar þú ert farinn. Það var svo gaman að sjá hvað þú varst glaður í kringum Ísold. Ísold elskaði að fara í eltingarleik með þér og allt það grín og glens sem var í kringum ykkur tvö, geymi ég í hjarta mínu.“ Thelma heldur áfram: „Ísold fær að vita daglega hversu yndislegan og góðhjartaðan pabba hún átti sem gerði allt fyrir hana. Ég vildi óska þess að ég gæti sýnt þér litlu tönnsluna hennar sem er loksins komin sem við biðum svo lengi eftir. Ég er svo þakklát fyrir það að Ísold er lík þér sem minnir mig á þig, hún er jafn stríðin og þú og þessi litli spékoppur og rauða hárið hennar mun ylja mér.“ Thelma segir á öðrum stað: „Það var svo yndislegt að sjá hvað Gosi hundurinn okkar leit upp til þín, þú varst greinilega húsbóndinn hans. Löngu göngutúrarnir ykkar saman og Geldingarnesið var ykkar griðastaður þar sem þið áttuð góða tíma saman. Þú kenndir honum listir og sýndir honum aga.“

\"\"

Þá segir Thelma um samband Helga og hundinn Gosa: „Það var svo yndislegt að sjá hvað Gosi hundurinn okkar leit upp til þín, þú varst greinilega húsbóndinn hans. Löngu göngutúrarnir ykkar saman og Geldingarnesið var ykkar griðastaður þar sem þið áttuð góða tíma saman. Þú kenndir honum listir og sýndir honum aga.“

Thelma segir að lokum: „Ég er enn að bíða eftir að vakna af þessum vonda draumi og að þú hringir í mig og segir mér allt af létta, bara til að heyra röddina þína aftur. Við Ísold og Gosi munum sakna þín og geymum þig í hjarta okkar þangað til við hittumst á ný. Ég vona svo innilega að þér líði betur núna og ert búin að fá þann frið og ró sem þú leitaðir af svo lengi.“

\"\"

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir þá sem vilja styðja við litlu Ísold Vök. Þau sem geta hjálpað fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum er bent á eftirfarandi söfnunarreikning.  

Reikningur númer: 537 – 18 – 370 - Kennitala: 031018 - 2420

Munum að margt smátt gerir eitt stórt – Vinsamlegast deilið!