Aldrei fyrr hafa svo mörg mál beðið afgreiðslu hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en nú. Rúmlega 6.300 mál bíða afgreiðslu en voru 4.000 í febrúar í fyrra. Töluverð hreyfing er sögð hafa verið á starfsfólki á ákærusviðinu og sé það ein aðalástæðan fyrir þessum langa afgreiðslutíma. Málin sem um ræðir hafa verið til rannsóknar hjá embættinu og á starfsfólk ákærusviðs að taka ákvörðun um hvort ákært verður í þeim eða þau felld niður. Elsta málið, sem bíður ákvörðunar, er átta ára gamalt en gagna er beðið í því máli.
Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að í febrúar í fyrra hafi óafgreidd mál verið 4.000 og hafi þá verið fleiri en venja er þar sem venjan væri að 2.000 til 3.000 mál væru til meðferðar á hverjum tíma.
Í svari embættisins nú kemur fram að töluverð hreyfing hafi verið á starfsfólki innan réttarvörslukerfisins á undanförnum tveimur árum en nú sé sviðið fullmannað og það hafi verið styrkt á öðrum sviðum. LÖKE skráningarkerfið hafi verið þróað meira til að það nýtist ákærusviðinu betur. Nú hafi starfsmenn þess fulla yfirsýn yfir öll mál og stöðu þeirra og feril innan kerfisins.
Haft er eftir Huldu Elsu Björgvinsdóttur, sviðsstjóra ákærusviðs, að fyrirhugað sé að bæta kerfið enn frekar.
Rúmlega helmingur málanna 6.300, eða 57 prósent, varðar meint umferðarlagabrot, hegningarlagabrot eru 35 prósent málanna og sérrefsilagabrot 26 prósent. Undir sérrefsilagabrot heyra til dæmis fíkniefnalöggjöfin og vopnalög.