Mikill fjöldi uppsagna í kjölfar gjaldþrots wow

Tilkynnt hefur verið um mikinn fjölda uppsagna í dag og í gær í kjölfar þess að WOW air var tekið til gjaldþrotaskipta í gær. Í kringum 1.100 manns misstu þar vinnuna hjá flugfélaginu en auk þess hefur Airport Associates sagt upp 315 manns, Kynnisferðir sagt upp 59 manns, WuXi NextCode sagt upp 27 manns, Lyfja sagt upp átta manns, Pipar/TBWA sagt upp fimm manns og Gray Line sagt upp þremur.

Nú þegar hafa því rúmlega 1.500 manns misst vinnuna á einu bretti. Viðskiptablaðið er meðal þeirra sem greindi frá uppsögnunum.

Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, sagði í viðtali í 21 í gærkvöldi að áhrif gjaldþrots WOW air yrðu víðtæk og myndu ekki bara lúta að ferðaþjónustunni. „Það má gera ráð fyrir samdrætti í ferðaþjónustunni, og það þýðir samdrátt í útflutningstekjum þjóðarbúsins, og það þýðir að hagvöxtur dregst saman og viðskiptaafgangur verður ekki eins mikill og annars hefði orðið, eða breytist í halla. Það þýðir að krónan, hún gæti átt undir högg að sækja. Það þýðir að, ef svona íslenska jafnan gengur upp, er hætta á að verðbólga stígi. Við sjáum það þegar verðbólga stígur, þá hefur það neikvæð áhrif á skuldir heimilanna og fyrirtækja o.s.frv. þannig að áhrifin eru auðvitað mjög víðtæk.“

Í hagspá Arion banka, sem var birt fyrir tveimur dögum, kom fram að líklegt væri að birtingarmynd samdráttar hagkerfisins kæmi fram í meiri mæli í auknu atvinnuleysi, fremur en gengisfalli og verðbólgu, sem Íslendingar hafi oftar fengið að finna fyrir í gegnum árin. Arion banki spáir því að atvinnuleysi hækki í 4,4 prósent á þessu ári og 4,8 prósent á næsta ári eftir að WOW air hætti starfsemi, en atvinnuleysi mældist undir 3 prósent á síðasta ári. Ef eitthvað er að marka fregnir síðasta sólarhrings eða svo er allt útlit fyrir að hagspáin gangi eftir hvað þetta varðar.