Mikill erill hjá björgunarfólki

Mikill erill var hjá lögreglu og björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna óveðurs sem gekk yfir landið. Eins og gjarnan á þessum árstíma tókust trampólín á loft og enduðu nokkur þeirra uppi í trjám.
 
Þess utan fuku þakplötur og vinnupallar og allmörg tré brotnuðu eða rifnuðu upp með rótum í mestu vindhviðunum sem fóru yfir 40 metra á sekúndu. Í morgun lágu greinar af trjám eins og hráviði um götur og vbar æði haustlegt yfir að líta þar sem heilu klasaranir af laufblöðum lágu yfir gangstéttum og stígum.
 
Lögregla fékk nokkrar tilkynningar um skemmdir á húsum og bifreiðum af völdum hluta sem fuku á þau, meðal annars trampolín og fellihýsi. Þá skemmdist björgunarsveitarbifreið í Vesturbænum þegar stórt veislutjald brotnaði.
 
Allhvass suðvestanvindur verður á suðvestanverðu landinu í dag, allt að 25 metrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir súld eða rigningu, en að mestu verður þurrt á norðaustanverðu landinu. Það lægir talsvert í dag, víða 8 til 13 síðdegis. Hiti verður 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. Það hvessir aftur seint í kvöld og nótt, einkum vestan til á landinu en lægir smám saman á morgun.