Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir að ákvörðun Þorsteins Pálssonar um að ganga úr Sjálfstæðisflokknum og í Viðreisn séu mikil vonbrigði en ákvörðun Þorgerðar Katrínar um að leiða listann í Kraganum fyrir Viðreisn hafi ekki komið á óvart. Hann hafi haft pata af starfi hennar með flokknum.
Jón sem sækist eftir 2.sæti í Suðvestur kjördæmi er gestur á Hringbraut í kvöld ásamt Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, þingmanni Samfylkingarinnar sem vill leiða annan hvorn Reykjavíkurlistann, býður sig fram í 1.sætið. Hún segir augljóst af ákvörðunum Þorsteins og Þorgerðar að Sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn. Jón etur kappi við sex aðra frambjóðendur um annað sætið í kraganum og Sigríður Ingibjörg við þrjá aðra sitjandi þingmenn í Reykjavík.
Stór helgi í pólitíkinni framundan. Samfylking kýs á lista í fjórum kjördæmum, Reykjavík norður og suður, Suðvestur og Norð vestur. Sjálfstæðismenn kjósa í tveimur stórum, Kraganum og Suðurkjördæmi.