Mikil vinstri sveifla í noregi

Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í norsku sveitarstjórnarkosningunum í gær og sætir þar einna mestum tíðindum að borgarstjórnarmeirihluti hægri flokkanna í höfuðborginni Osló er fallinn eftir 18 ára valdasetu.

Meirihluti hægriflokkanna féll í allmörgum stórum borgum Osló, svo sem Björgvin og Tromsö - og er fylgisveiflan yfir til vinstri flokkanna harla augljós, en Græningjar sóttu einnig í sig veðrið, fjórfölduðu fylgi sitt í gær, fengu m.a. 8% fylgi í Osló og eru þar sem víðar í oddaaðstöðu við myndun  meirihluta.

Sigur Verkamannaflokksins er aftur á móti mestur, enda verður hann að líkindum stærsti flokkurinn í 17 af 19 fylkjum Noregs. Stjórnarflokkarnir, Hægri- og Framfaraflokkurinn, tapa nær alstaðar.
 

Kristilegi þjóðarflokkurinn bætir einnig víða við sig fylgi á kostnað ríkisstjórnarflokkanna, þar á meðal í Osló þar sem flokkurinn hefur til skamms tíma átt takmörkuðu fylgi að fagna.

Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, segist afar vonsvikin vegna úrslitanna, og Erna Solberg, forsætisráðherra og formaður Hægriflokksins, tekur í sama streng. Solberg er þó bjartsýn á framtíðina og greip til frægs frasa úr kvikmyndasögunni í ávarpi sínu á kosningavöku flokksins: \"Ég er sannfærð um að öll hægri blokkin geti með sanni sagt I\ll be back 2019.“ 

Jonas Gahr Støre var spurður hvort hann mundi leiða Verkamannaflokkinn í þingkosningunum 2017