,,Við höfum ekki verið að gera ráð fyrir að fólk horfi á sjónvarpsþætti sem við vinnum í samvinnu við Hringbraut og setjist síðan strax við tölvuna og sendi Spyr.is fyrirspurnir. Viðbrögðin í gær komu okkur því á vissan hátt á óvart, sjónvarpsáhorfendur höfðu samband við okkur bæði í gegnum fyrirspurnargáttina og á Facebook," segir Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri spyr.is um viðtökur fyrsta þáttar Sjónarhorns á Hringbraut í gærkvöld þar sem fjallað var um erfðamál.
Þátturinn Sjónarhorn í umsjá Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur er unninn í samvinnu Hrignbrautar og upplýsingaveitunnar spyr.is, en þar er tekið á flestum þeim þáttum sem snerta einstaklinga og heimili. Fyrsti þátturinn var um erfðamál sem fyrr segir. Þar voru viðmælandur sérfræðingur frá skatta- og lögfræðisviði KPMG, Halla Björg Evans og tveir héraðsdómslögmenn, þau Guðbjörg Anna Guðbjörnsdótti á Málflutningsstofu Reykjavíkur og Benedikt Egill Árnason á Logos lögmannsþjónustu. Erfðamálin voru rædd í þaula og ekki síst þau flækjustig sem koma upp en þau geta verið fjölmörg og mjög mismunandi eftir fjölskyldum. Að mörgu er að huga og þá ekki síst í nútímasamfélagi þar sem hjón eru oftar en ekki með stjúpbörn, eftirlifandi maki ætlar að gifta sig aftur eða réttindi fólks til að segja sjálft til um hvernig arfi skal úthlutað.
,,Við tökum okkur daginn í að vinna úr öllum þessum fyrirspurnum, # segir Rakel og bætir við: "Nokkur ný erindi munu fara í vinnslu en eins þurfum við að vinna betur úr nokkrum spurningum sem þegar hefur verið svarað á spyr.is. Að okkar mati eru viðbrögðin fyrst og fremst endanleg staðfesting á því að sjónvarp og netmiðlar virka mjög vel saman. Þetta voru því mjög ánægjuleg tíðindi hjá okkur í morgunsárið og líka ánægjulegt að upplifa það hversu athugulir áhorfendur Hringbrautar eru."