Mikið flutt inn af byggingakrönum

Það er samdóma álit þeirra byggingaraðila sem hringbraut.is hefur haft samband við síðustu daga að byggingariðnaðurinn á Íslandi sé að taka vel við sér eftir margra ára doða. Einn þeirra orðaði það svo að landsmenn væru að minnsta kosti tveimur árum á eftir eftirspurninni - og það væri eins gott að bretta upp ermar ef fasteigna- og leiguverð ætti ekki að fara út úr öllu korti. Annar viðmælandi í sömu stétt benti á að nú væri mikil spurn eftir margskonar smíðavörum og þá ekki síst byggingakrönum; þeir hefðu lang flestir verið seldir úr landi eftir hrun - og aðallega upp í skuld, eins og annar nefndi, en nú væri þörfin orðin brýnni en nokkru sinni á öðrum áratug nýrrar aldar; himinninn yfir Reykjavík og öðrum þéttbýlisstöðum á landinu færi brátt að taka á sig fyrri mynd, fullur af byggingakrönum til að seðja mótin steypulögn og járni.


Sérfræðingar sem til þekkja á þessum markaði telja að byggingaraðilar horfi nú ekki síst á aukna spurn eftir opinberum úrræðum á leigumarkaði, eins sé ný kynslóð að koma inn á markaðinn sem kalli eftir meðalstórum íbúðum sem hún vilji búa í til langframa, en því sé heldur ekki að leyna að ásókn í gistirými sé síður en svo að minnka þrátt fyrir hundruð nýrra hótelherbergja sem verða tekin í notkun á þessu ári.