Mikill snjór hefur fallið víða um land síðan í gær. Á Akureyri fóru ökumenn sér hægt í morgun í lélegu skyggni. Þar kyngdi niður snjó og er um langmesta snjó að ræða í vetur. Myndin að ofan var tekin í íbúðahverfi á Brekkunni upp úr klukkan átta í morgun og segir sína sögu. Samkvæmt lögreglu var lítið um óhöpp.
Veðurstofan hefur spáð allt að 20 stiga frosti á NA-landi á morgun inni í landi. Spáin er annars þannig yfir allt landið:
Norðaustan 5-13 m/s og él en bjartviðri sunnan og suðvestanlands. Líkur á éljum allra syðst í dag. Dregur úr ofankomu NV-til í kvöld en gengur í norðvestan 8-13 með snjókomu NA-lands í kvöld en hvassara verður með SA-ströndinni. Suðlæg átt, 5-13 m/s í fyrramálið og bjartviðri A-til en þykknar upp með snjókomu og síðar slyddu um landið vestanvert en vestan 5-13 rigning þar annað kvöld. Frost 2 til 10 stig í dag og kólnar enn frekar í kvöld en hlánar við vesturströndina á morgun.
Liggur fyrir að ökumenn víða um land verði að taka mið af breyttum aðstæðum. Tíðindum þykir sæta norðanlands að fyrsti snjór vetrarins falli að heitið getur eftir miðjan nóvember.
Vonir standa til að hægt verði bráðlega að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fyrir almenningi.