Í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut á þriðjudagskvöldið, kom fram að mikil skömm fylgir oft smálánum. Þetta séu lán sem fæstir vilji taka nema í neyð og því sé það oft þannig að til dæmis foreldrar vita ekki af smálánaskuldum barna sinna, fyrr en allt er komið í óefni.
Dæmi um þetta eru smálánaskuldir dóttur Bryndísar Þóru Jónsdóttur, sem var gestur í þættinum og sagði sögu sína og dóttur sinnar svo eftir var tekið. Dóttirin var 19 ára þegar hún byrjaði að taka smálán. Þegar foreldrarnir komust að því, var allt komið í óefni. Þau enduðu því með því að greiða upp hundruði þúsunda króna til að gera upp skuldina.
Samið var um að dóttirin færi á ,,svartan lista” hjá fyrirtækjunum, svo sagan gæti ekki endurtekið sig. Það samkomulag reyndist orðin tóm, því nokkrum mánuðum síðar, tók dóttirin 5 smálán og átti enn 80 þúsund krónur ógreitt af þeim. Þremur árum eftir lántöku, þann 1.september síðastliðinn, tæmdu smálánafyrirtækin síðan bankareikninginn hennar, um 170 þúsund krónur.
Bryndís Þóra segir marga skammast sín of mikið fyrir smálánin til að segja frá þeim. Það hafi verið hluti af ástæðunni fyrir því að dóttirin sagði foreldrum sínum ekki frá. Bryndís sagðist fullviss um að þessi skömm væri algeng hjá lántakendum smálána. Sá hópur ætti það sammerkt að vera oft í miklum kröggum. Dæmi eru um að ungt fólk sé í sjálfsmorðshugleiðingum vegna smálánaskulda, en nánar má fræðast um þetta í þættinum Ég bara spyr, sem verður endursýndur á föstudagskvöldið klukkan 21.30.
Þáttinn má líka sjá hér á hringbraut.is.