Mikil reiði vegna orða um höfundarétt

Mikill hiti varð á Facebook í gærkvöld eftir að Félag tónskálda skrifaði færslu um Pírata og höfundarétt, en þeir eru sagðir bíta í höndina á þeim sem brauðfæddi þá.

„Það er afar undarlegt, svo ekki sé meira sagt, að tveir af þeim þremur fulltrúum sem Píratar eiga á Alþingi, skuli ítrekað kjósa að bíta í höndina sem brauðfæddi þá,“ voru upphafsorð stöðufærslu félagsins. Heimildir Hringbrautar herma að Jakob Frímann Magnússon sé í forsvari fyrir síðuna, en ekki liggur þó fyrir hvort hann skrifaði sjálfur færsluna eða aðrir í félaginu sem njóti réttinda til að skrifa í nafni félagsins.

 Það voru þó ekki ofangreind upphafsorð sem styggðu fjölda lesenda á facebook heldur það sem kom á eftir í færslunni og varð uppspretta eldheitra mótmæla.

 „Höfundarrétturinn var og er forsenda þess að Gunnar Smári Helgason, faðir Helga Hrafns, gat um árabil framfleytt sér og fjölskyldu sinni með störfum sínum við hljóðritanir á helstu listamönnum landsins. Höfundarrétturinn var sömuleiðis forsenda þess að Bergþóru Árnadóttir, móður Birgittu Jónsdóttur, gafst kostur á að hljóðrita sín verk og hafa af þeim tekjur, bæði af hljómplötusölu og af STEF-gjöldum vegna útvarpsflutnings og spilunar á opinberum stöðvum. Ítrekaðar atlögur Pírata að rétti höfunda til að takmarka gjaldfrjálsan aðgang að verkum sínum, virðast réttlættar með því grundvallarviðhorfi Píratanna að þær leikreglur sem almennt gilda í mannheimum, skuli alls ekki gilda í netheimum! Að draga slíkar skýringar í efa með rökræðum við Pírata er álíka vonlítið og að ætla sér að rökræða við Múhameðstrúarmenn um tilvist hinna óspjölluðu, meintu verðlaunameyja í sæluríkinu eina í himinhvolfunum,“ sagði í færslunni og var tengt við frétt Rúv þar sem höfð voru orð eftir Helga Hrafni Gunnarssyni, kapteini Pírata og þingmanni.

 Jón Kjartan Ingólfsson tónlistarmaður var í hópi þeirra sem brugðust við og skrifaði: „Þið þurfið að senda einhvern í að biðja hlutaðeigandi afsökunar á þessu rugli. Helga Hrafn, Birgittu og 1.8 milljarð múslima!“

Stefán Bogi Sveinsson lögmaður sagði að stöðufærsla félagsins færi út yfir velsæmismörk og skoraði á félagið að fjarlægja hana. Fleiri fóru fram á hið sama. Var um síðir brugðist við því en áður hafði Félag tónskálda og textahöfunda skrifað þetta í athugasemd: „Hvar liggja velsæmismörkin Stefán Bogi? Fer það ekki út fyrir velsæmismörk að skora á fólk að leita allra leiða til að þefa uppi ólöglegar leiðir til að nálgast höfundavarið efni, sbr. orð þingmanns Pírata í dag.“

Nokkru síðar fór loftið úr blöðrunni, stöðufærslan hvarf af facebook og textasmiðir og tónskáld birtu eftirfarandi tilkynningu á facebook síðunni: „FTT biðst velvirðingar á færslu sem birtist hér fyrr í dag. Hún var ósanngjörn og hefur verið fjarlægð. Höfundum er heitt í hamsi, þegar lifibrauð þeirra er annars vegar. Við biðjum hlutaðeigandi innilegrar afsökunar.“