Mikil reiði er meðal hjúkrunarfræðinga, en kjarasamningur félagsins var felldur af félagsmönnum með 88,4% greiddra atkvæða í gær. Á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi er staðan einstaklega slæm; 60% hjúkrunarfræðinga hafa sagt upp störfum og gangi uppsagnirnar eftir má gera ráð fyrir að loka þurfi deildinni.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar segir Kristín Gunnarsdóttir, deildarstjóri á gjörgæslu í Fossvogi að tveggja ára sérfræðinám þurfi til þess að starfa á deildinni. Gangi uppsagnirnar eftir séu miklar líkur á því að spítalinn lamist.
Alls hafa 258 hjúkrunarfræðingar sagt upp störfum. Vísir.is hefur það eftir hjúkrunarfræðingi á svæfingardeild Landspítalans að mikil reiði sé meðal hjúkrunarfræðinga og að þeir ætli að standa við uppsagnirnar.
Kjarasamningurinn var undirritaður þann 23. júní síðastliðinn. Samningurinn var felldur með 1677 atkvæðum á móti 219, en alls voru 2236 hjúkrunarfræðingar á kjörskrá. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að stjórn þess líti svo á að samningar séu nú lausir og að félagið komi til með að endurmeta stöðuna í ljósi niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.
Óánægja hjúkrunarfræðinga með samninginn þarf ekki að koma á óvart, en Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra sögðu í fréttum í gær að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar kæmi sér ekki á óvart, óánægja hjúkrunarfræðinga hafi alltaf verið ljós.