Mikil hækkun umferðarsekta

Sektir fyrir umferðarlagabrot hækka verulega frá og með deginum í dag, 1.maí.

Flestar sektir hækka og oft þrefalt eða fjórfalt á við það sem þær eru núna.  

Lægsta sektar­fjár­hæð frá 1. maí verður 20.000 krón­ur en var áður 5.000 krón­ur (eina und­an­tekn­ing­in er að sekt fyr­ir að hafa ekki öku­skír­teini meðferðis verður 10.000 krón­ur). Þetta er t.d. fyrir að aka án þess að spenna beltin. Hæstu sektirnar hækka líka, þó að hlutfallslega sé hækkunin ekki eins mikil.

Langhæstu sektirnar verða ef ökumaður fer yfir 90 kílómetra hámarkshraða og mælist á 160 kílómetrahraða eða 240 þúsund krónur. Þá fær viðkomandi sekt upp á 320 þúsund ef vínandamagn í blóði er meira en 2,01 eða meira.

Fyrir að tala í farsíma á meðan akstri án handfrjáls búnaðar á meðan á akstri stendur mun kosta 40 þúsund í sekt.

Ný sekt tekur þá gildi gagnvar hjólafólki og mun sektað verða um 20 þúsund krónur ef hjólar er gegn rauðu umferðarjósi

Sektir fyrir umferðarlagabrot hafa margar verið óbreyttar í rúman áratug, segir á vef Samgöngustofu og verið sé að auka fælingarmátt sektanna.

Sektarreiknir verður uppfærður þar sem notendur geta valið sér skilyrði og fengið út hver refsingin kemur til með að verða fyrir hraðakstur og ölvunarakstur. Sjá nánar hér á vef Samgöngustofu.