Mikil gremja í bænum

Friðrik Sigurðsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, er gegn þeirri breytingu sem orðið hefur á Húsavík, að þar verður ekki lengur flaggað við andlát heimamanna heldur aðeins við útfarir.

„Ég studdi breytingartillögu Óla Halldórs, þ.e. að það yrði framvegis flaggað í samræmi við fánalög/reglugerð við stjórnsýsluhúsið á Húsavík en sú tillaga var felld,“ segir Friðrik í samtali við Hringbraut.

„Ég mat málið svo að ef menn ætla að breyta þessu á annað borð þá þarf að ganga alla leið en ekkert hálfkák,\" bætir forseti sveitarstjórnar við.

Hann segist vita til þess að fyrir nokkrum árum var mikil umræða í Borgarnesi þar sem breyting var gerð á þessu. \"Ég held að í dag sé bara flaggað þar við dvalarheimili aldraðra þar í bæ.“

Hringbraut flutti frétt af óánægju með hina nýorðnu breytingu í gær. Telur Friðrik það koma til greina að beita sér fyrir afnámi þessarar samþykktar í ljósi neikvæðra viðbragða?

„Þetta er búið að vekja mikla gremju já og spurning hvar þetta endar, það er hvort málið verður tekið fyrir aftur á næsta fundi í nóvember og greitt um það atkvæði aftur. Ég hef ekki rætt það við nokkurn mann svo ég get ekki svarað því,\" segir Friðrik Sigurðsson, forseti sveitarstjórnar,en útlokar það alls ekki.

Flutningsmaður tillögunar var Hjálmar Bogi Hafliðason varabæjarfulltrúi. Tillaga hans um breytinguna var samþykkt á síðasta fundi.