Alls fékk sænska lögreglan 6.270 hatursglæpi á borð til sín árið 2014. Sjö af hverjum tíu málum voru vegna kynþátta- eða útlendingahaturs. Önnur mál voru vegna kynhneigðar fórnarlamba og glæpir gegn fólki sem aðhyllist íslam, gyðingdóm og nokkur önnur trúarbrögð. RÚV greinir frá þessu í morgun.
Glæpir gegn öllum þessum hópum hafa aukist á síðustu árum, utan glæpa vegna kynhneigðar sem hefur fækkað um næstum 20% síðustu fimm ár.
Mesta aukningin hefur verið á glæpum gegn kristnu fólki, en þeir hafa þrefaldast á síðustu fimm árum. Glæpir gegn múslimum og gyðingum hafa einnig aukist verulega á sama tíma.
Aðeins fimm prósent glæpanna eru þó leystir af lögreglu. Ástæða þess er að iðulega eru glæpirnir framdir af ókunnugum einstaklingum á opinberum stöðum.
Yfirvöld í Svíþjóð voru gagnrýnd af Sameinuðu þjóðunum fyrr á þessu ári fyrir að taka ekki nógu hart á mismunun í þjóðfélaginu og auknu ofbeldi gagnvart minnihlutahópum. Var þar sérstaklega tekið til glæpa gegn múslimum, gyðingum og fordómum gagnvart Rómafólki ásamt auknu kynbundnu ofbeldi gegn konum.