Mikil endurnýjun hjá samfylkingunni

Búist er við að um 500 manns muni mæta á Landsfund Samfylkingarinnar á Grand Hótel í Reykjavík klukkan 17 í dag. Árni Páll Árnason, fráfarandi formaður Samfylkingarinnar setur fundinn með ávarpi. Ljóst er að formannskosningarnar verða spennandi og áhrifamenn í flokknum hefur hver á fætur öðrum lýst stuðningi sínum við eitthvert framboðsefnanna.

Jóhanna styður Oddnýju

Ljóst verður klukkan 18 í dag hver mun taka við formannssætinu í Samfylkingunni. Undanfarið hafa áhrifamenn í flokknum lýst yfir stuðningi við Magnús Orra Schram, Varaþingmann,  m.a. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Össur Skarhéðinsson,þingmaður og  fyrrum ráðherra. Katrín Júlíusdóttir þingmaður steig áður fram og lýsti stuðningi við Magnús Orra. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra hefur þó fengið mest fylgi í þeim skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið. Þá hefur fyrrverandi formaður og forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir lýst yfir stuðningi við Oddnýju og einnig Ólína Þorvarðardóttir og Sigriður Ingibjörg Ingadóttir þingkona svo dæmi séu tekin. Sigríður Ingibjörg bauð sig eins og þekkt er orðið, óvænt á móti Árna Páli formanni í fyrra sem vakti mikið umtal og deilur. Árni Páll sigraði með eins atkvæða mun.

Helgi Hjörvar þingflokksformaður nýtur aftur á móti stuðnings Hrannars B. Arnarsonar fyrrverandi aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur og Marðar Árnasonar fyrrverandi þingmanns,

Yngstur af fjórum formannsframbjóðendum er Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi en hann er nýliðinn í hópnum sem hefur ekki notið stuðnings þungaviktarfólksins á við hina frambjóðendurna.

„Erum bjartsýn og glöð“

Kjör varafomanns verður ljóst seinna í kvöld eða kl.22.  Stjórn flokksins verður síðan kosin á morgun en búist er við miklum mannaskiptum. Kosin verður ný framkvæmdarstjórn en allir í þeirri sem hefur  starfað hefur sagt af sér.   „Stemmningin er þannig að við eru afskaplega bjartsýn og glöð“, sagði Eva Bjarnadóttir, aðstoðarmaðurmaður formanns flokksins í samtali við Hringbraut.is.

Landsfundinum lýkur á laugardag með stefnuræðu nýs formanns.