Mikil endurnýjun

Von er á fjórum nýjum togurum fyrir þrjár útgerðir á Norðurlandi. Togarar bætast einnig við veiðiskipaflota útgerða í Vestmanneyjum og í Hnífsdal. Í Reykjavík hefur HB Grandi tekið við einu nýju veiðiskipi  og er eitt skip á heimstímingu og hið þriðja er í smíðum fyrir HB Granda og hefur útgerðin samið um smíði á fjórða veiðiskipinu við spænska skipasmíðastöð. Síldarvinnslan hf hyggst endurnýja sinn veiðiskipaflota og áformar smíði fjögura veiðiskipa.

Útgerðin sparar 10 til 15 milljarða króna í kaupum á þessum veiðiskipum vegna styrkingar krónunnar. Meðalverð hvers skips gæti verið í kringum 4 milljarðar. Krónan hefur styrkst um 30% á 2 árum og því kostar hvert veiðiskip hingað komið frá einum til einum og hálfum milljarði minna í íslenskum krónum talið. Sterk króna vegur hér þungt þó hún skaði útflutningsgreinarnar að öðru leiti.

rtá