Forsvarsmenn Hólmadrangs, rækjuvinnslunnar á Hólmavík, eru bjartsýnir um rækjuvinnslu. Fyrirtækið Hólmadrangur hefur haft óslitna starfsemi síðan árið 1965 eða í yfir fimmtíu ár.
Á vef Bæjarins besta, bb.is má lesa frétt þessa efnis. Þar stendur:
Þessa dagana er vinnslustopp hjá fyrirtækinu en á þessum tíma er alltaf gert tveggja til þriggja vikna hlé. Vinnslan mun fara af stað aftur í kringum næstkomandi mánaðarmót. Sigurbjörn Úlfarsson, framkvæmdastjóri, sagði blaðamanni BB að nóg verði að gera hjá starfsfólki fyrirtækisins í haust.
Hann segir við fréttamann BB:
„Stærsta hlutann erum við að fá úr Barentshafi og við Nýfundnaland og Kanada. Fáum líka eitthvað úr Kyrrahafinu og fáum þetta frosið til okkar. Langstærsti markaðurinn okkar er í Bretlandi“.