Mikil aukning handtakna vegna kaupa á vændi – einungis karlmenn brotlegir

Undanfarið hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagt aukinn kraft í rannsóknir mála er snúa að skipulagðri brotastarfsemi, og eru mansal og vændi ein birtingarmynd þess. Í nýrri samantekt embættisins, afbrotatölfræði fyrir maí, má lesa um mikla fjölgun kynferðisbrota í umdæminu í maí, en ástæður þessa má rekja til áherslna lögreglunnar er taka til vændismála.

Svo segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kynferðisbrotin, í þessum tilfellum kaup á vændi, voru 17 í maí og enn fleiri í júní, eða 21. Allt árið í fyrra voru brotin 9, en í tilkynningunni segir að á þessu ári hafi embættið haft meiri mannafla og tíma til að takast á við málaflokkinn, sem endurspeglist í þessum tölum. Vændismálin eru samtals 48 það sem af er árinu 2019.

94 prósent þeirra sem voru staðnir að verki við vændiskaup eru íslenskir karlmenn, með meðalaldurinn 41 ár.  Hinir, 6 prósent, eru erlendir karlmenn.

Þeir sem stunda vændi hérlendis eru mestmegnis erlendar konur, en sumar þeirra virðast koma hingað ítrekað þessara erinda. Mansalsmál eru sömuleiðis til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en í tilkynningunni eru þau sögð þung í vöfum og taki langan tíma. „Hér, líkt og á Norðurlöndunum, eru fá mál sem fara alla leið í kerfinu, en það kann að breytast þegar fram líða stundir,“ segir að lokum í tilkynningunni.