Ný könnun á vegum áhugahópsins Auðlindir okkar leiðir í ljós að mikill meirihluti landsmanna er andvígur sölu á rafmagni gegnum sæstreng til Bretlands, en forráðamenn Landsvirkjunar hafa mjög talað fyrir þeirri hugmynd um árabil.
Hópurinn fjármagnaði könnunina sjálfur og segir Viðar Garðarsson, einn meðlima hópsins við Morgunblaðið í dag að nuðurstaðan sé afgerandi; 67% þátttakenda í könnuninni, sem náði til 1420 manns, eru andvíg lagningu sæstrengsins.
Viðar segir að fólk sé greinilega að gera sér grein fyrir því að lagning sæstrengs verður ekki að veruleika nema til komi miklar virkjanaframkvæmdir í viðbót við það sem fyrir er í landinu, eða sem nemur líklega tveimur Kárahnjúkavirkjunum. Hann segir að nú sé komið í ljós að sæstrengurinn verði ekki sjálfbær og ekki verði hægt að selja í gegnum hann orku með framlegð nema breska ríkið verði tilbúið að greiða flutninginn niður á hinum endanum. Þetta vilji þjóðin greinilega ekki, segir Viðar við blaðið.