Þátturinn Ativnnulífið verður á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 20.00. Að þessu sinni verður þátturinn helgaður starfsemi Seltjarnanesbæjar þar sem stiklað verður á stóru í starfsemi bæjarfélagsins. Rætt verður við Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra sem tók við því starfi árið 2009 auk annarra stjórnenda á Seltjarnarnesi sem hafa með fræðslu- íþrótta-, tónlistar- og menningarmál að gera. Komið verður inn á nýlega könnun Gallup sem gerð var meðal íbúa 19 sveitarfélaga á Íslandi, var Seltjarnarnes með bestu útkomuna, en 85% aðspurðra íbúa sögðust vera ánægðir með þá þjónustu sem í boði er. Seltjarnarnes hefur ýmsa sérstöðu eins og íþróttasvæðið sem saman stendur af sundlaug, knattspyrnuvelli, líkamsræktarstöð, íþróttahúsi og félagsmiðstöð. Auk þess eru 2 grunnskólar örskamt frá þannig að mikið hagræði er af þessum mannvirkjum á sama stað. Fjallað verður ítarlega um menningarstarfsemi bæjarfélagsins sem fram fer m.a. á Eiðistorgi og eitt af elstu húsum landsins skoðað á vestur hluta Seltjarnarness.
Þáttastjórnandi er Sigurður K. Kolbeinsson en kvikmyndatöku annaðist Friðþjófur Helgason.