Fátt kemur í veg fyrir að stórfelld verkföll hefjist á miðnætti í kvöld. Formaður SFR stéttarfélags, Árni Stefán Jónsson, segir að ríkið hafi kynnt nýtt útspil á samningafundi með samninganefnd ríkisins í morgun. Það muni þó taka tíma að bregðast við og því stefni allt í verkfall.
Fundað verður fram eftir degi en m.a. safnaðst fjöldi lögreglumanna saman í morgun fyrir framan húsnæði ríkissáttasemjara í samstöðuskyni. Um þriðjungur starfsmanna á Landspítala mun leggja að óbreyttu niður störf, sjúkraliðar fjölmennastir. Símsvörun og móttaka í opinberum stofnunum kemst í uppnám, starfsmenn hjá ríkisskattstjóra og tollstjóra fara í ótímabundið verkfall sem m.a. mun þýða að ekki verður hægt að þinglýsa samningum. Þá fara Þjóðleikhúsið og ÁTVR í tveggja sólarhringa verkfall svo aðeins fátt eitt sé nefnt.
Skemmtistaðir hafa samkvæmt upplýsingum Hringbrautar keypt ókjör af áfengi síðustu daga þar sem þeir búa sig undir að svala þorsta landsmanna. Á sama tíma kann heilbrigðisgeirinn og sumir aðrir hluta kerfisins að hálflamast.
Forsætisráðherra hefur sagt að lög verði ekki sett á verkfallið.