Mikið verk að vinna í hörpu

Nýr forstjóri Hörpu er Svanhildur Konráðsdóttir – Linda niður með henni inni í Hörpu, í tröppugangin ofan við Eldborgarinnganginn og ræddi meðal annars um hvað þyrfti að gera öðruvísi í húsinu gagnvart erlendum ferðamönnum.  

Kristján Ingi Einarsson, ljósmyndari er að senda frá sér sjöttu bókina sína um náttúru landsins, en í samtali sínu við Sigmund Erni segir hann það vera einstök forréttindi að fara um landið og taka af því ljósmyndir við hvaða birtuskilyrði sem er. Morgun- og síðdegisbirtan sé óviðjafnleg við það sem kollegar hans erlendis búi við. Hann kveðst aldrei hafa fengið leið á því að taka myndir af íslensku landslagi, enda aðstæðurnar aldrei eins og þeim endalausa fjölda ferða sem hann hefur farið um allt land á síðustu fjört´æiu árum, með myndavélina fasta um hálsinn.  

Linda ræðir einnig í þætti kvöldsins við  Páll Thamrong Snorrason sem fór í ferð til Tælands í fyrrahaust. Í ferðinni fann hann munaðarleysingjahælið sem hann bjó á til fjögurra ára aldurs eða þar til hann var ættleiddur til Íslands – en einnig lenti Páll í slæmri reynslu þegar hann sótti ristastórt strandpartí á Tælandi og var rændur.

Vífill Karlsson hagfræðingur hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi ( SSV ) og dósent við háskólann á Akureyri hefur tekið saman áhrif ferðaþjónustunnar á tekjur og kostnað sveitarfélaganna. 
Ferðalagið er á dagskrá á milli 20 og 21 og er í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis.