Fimm heimilisofbeldismál voru tilkynnt til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því um mitt gærkvöld til að verða fjögur í nótt sem leið. Fjögur málanna voru í mið- og austurhlutahluta borgarinnar.
Þrír gistu fangaklefa vegna umræddra mála, tveir karlar og ein kona.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði annars í nógu að snúast í gærkvöld og nótt, enda mannmergð í miðborginni. Fimm bílar voru stöðvaðir vegna gruns um að bílstjórarnir væru ölvaðir við akstur.
Í einu tilviki sást þegar bíll var stöðvaður á Arnarnesvegi og ökumaður skipti um sæti við farþega. Við athugun kom í ljós að báðir voru ölvaðir.
Ekki hefur frést af miklum önnum lögreglunnar úti á landi á Þorláksmessu og það sem af er degi, en færð er þar víða að spillast, einkum á Vestfjörðum, Norðurlandi og suðaustanlands.