Stórtjón varð í miklum eldsvoða í Plastiðjunni á Selfossi í gærkvöld og varð að rýma nálæg hverfi vegna mikils og kæfandi reyks sem lagðist yfir nærliggjandi svæði.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út seint í gærkvöld þegar eldsins varð vart og varð snemma ljóst að aðalhúsi Plastiðjunnar yrði ekki bjargað. Einn maður var við vinnu í húsinu þegar eldurinn gaus upp og komst hann af sjálfsdáðum út og sakaði ekki.
Slökkvliði bæjarins, með hjálp slökkviliðsmanna úr uppsveitum og af höfuðborgarsvæðinu tókst að verja nálægt trésmíðaverkstæði sem er áfast Plastiðjunni með milliskúr og stóðu slökkviliðsmenn þar vaktina lengst af og tókst að halda eldinum þar í skefjum á meðan aðalhúsið brann til grunna í miklu eldhafi sem vonlaust var að eiga við.
Mikinn, ramman og kæfandi reyk lagði yfir byggðina í grennd og var gripið til þess ráðs að rýma nálæg hverfi. Um tíma höfðust um 100 manns við í fjöldahjálparstöð sem komið var upp í Vallaskóla á Selfossi.
Eldsupptök eru ókunn, en vettvangsrannsókn hefst í birtingu í dag.