Mikið sótt í gamlar óbreyttar eignir

Mikill áhugi er á meðal fasteignakaupenda á höfuðborgarsvæðinu að verða sér úti úm gamlar, óbreyttar íbúðir eða hæðir á rótgrónum stöðum.

Þetta kemur fram í þættinum Afsal sem sýndur verður á Hringbraut í kvöld, en þar leiðir Guðbergur Guðbergsson hjá Fasteignasölunni Bæ, áhorfendur í gegnum mikið breytta eign annars vegar en hins vegar eign sem er enn í sínum upphaflega stíl. Guðbergur segir markhóp fyrir hvoru tveggja. Sumir vilji fyrst og fremst eign sem lítið þurfi að gera við, á meðan aðrir sækjast eftir eignum sem gefa tækifæri til að breyta miklu. Á því séu þó undantekningar og megi þar nefna Vesturbæinn sérstaklega. Þar eru margar eignir í sínum upphaflega stíl, sem teljast mjög eftirsóttar. Guðbergur mælir með því að fólk leiti til arkitekta eða sambærilegra aðila, þegar ætlunin er að breyta eignum mikið. Þeir bendi oft á hluti sem nýtast enn betur en ella og huga líka vel að burðarverki og fleira. Í þættinum er einnig rætt um aðgerðir fyrir ungt fólk, en þar bendir Guðbergur sérstaklega á þá leið sem þegar er þekkt fyrir eldri borgara. Hún gengur út á það að kaupendum er veittur verulegur afsláttur af lóðarverði, sem án efa gæti liðkað fyrir kaupum ungs fólks á sinni fyrstu fasteign. Umsjón þáttarins er í höndum Rakelar Sveinsdóttur og Helgu Eir Gunnlaugsdóttur.

Þátturinn er á dagskrá kl.21.00 og í endursýningu kl.23.00.