Mikið landað í austfjarðarhöfn

Rétt fyrir helgi, á fimmtudag og föstudag komu fjórir norskir loðnubátar með afla til Neskaupstaðar og var unnið alla helgina í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, segir á  vef fyrirtækisins. Bátarnir fjórir lönduðu yfir 2000 tonnum.   

Fimm bátar til viðbótar landa í höfninni í dag, samtals með um 1700 tonn. Bátarnir hafa fengið aflann úti fyrir Norður- og Norðausturlandi.

Þá landaði Polar Amaroq fullfermi af frosinni loðnu, 610 tonnum, í frystigeymslur Síldarvinnslunnar í Neskaupstað sl. laugardag en skipið hefur að undanförnu verið við loðnuleit ásamt því að leggja stund á veiðar.