„Vel valdar fimm mínútur til að tékka á #nakinninniíkassa – æla og niðurgangur – og ég að borða morgunmatinn“
Þessi orð lét ung kona falla sem ákvað að fylgjast með nakta myndlistarmanninum í glerkassa í morgun. Enn eitt dæmið um gagnvirkni viðfangsins og þeirra sem horfa á það á Internetinu.
Nú er því spáð að Arnar Atlason, myndlistarneminn nakti í búrinu, muni fljótlega gefast upp á vist sinni. Hefur móðir hans sagt opinberlega á Twitter að hún vilji að hann fari að hætta, komi heim og fari í sturtu. Móðurhjartað sé farið að tikka inn.
Almar hefur nú náð að æla, fá niðurgang og runka sér á nokkrum klukkutímum. Hafa áhorfendur sem og listfræðingar eflaust úr ýmsu að moða.
En getur kostað lystina semn fyrr segir.