Skellur í menningarmálum á akureyri

Mikið tap einkenndi rekstur MAK, Menningarfélags Akureyrar árið 2015. Með stofnun MAK síðla árs 2014 var rekstur Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og menningarhússins Hofs settur undir einn hatt. Nokkrir nýir sviðsstjórar voru ráðnir og vakti athygli þegar ýmsar kanónur á landsvísu sóttu um störf yfirmanna og fengu. Þar má nefna Þorvald Bjarna Þorvaldsson, kenndan við Todmobile, sem er yfir tónlistarhlutanum og Jón Pál Eyjólfsson leikara sem er yfir Leikfélagi Akureyrar. Þá var nýr framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, Gunnar I. Gunnsteinsson, ráðinn eftir stofnun félagsins en hann hætti störfum eftir um eitt ár og hefur nýr verið ráðinn í hans stað. Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri MAK, var ráðin til starfa í janúar sl.

Listræn ánægja - efnalegt tap


Sigurður Kristinsson, formaður stjórnar MAK, segir í samtali við Hringbraut að rekstur síðasta árs hafi ekki verið í jafnvægi, stjórnin sé á fullu að bregðast við tapi á rekstrinum. Sigurður tekur fram að mikil ánægja hafi orðið með þá viðburði sem MAK hafi staðið fyrir á árinu og listrænt séð sé ánægja með framlegðina. Það hafi aftur á móti komið í ljós fyrir nokkru að áætlanir stæðust ekki. \"Eftir því sem stjórnin hefur fengið meiri og betri upplýsingar um stöðu rekstrarins þá hefur komið betur og betur ljós að stjórnin þarf að grípa til aðgerða í samvinnu við nýjan verkefnisstjóra. Sú vinna er þegar hafin og kemur betur í ljóst á næstunni hvernig því verður mætt.\"

MAK þurfti að leita samþykkis fyrir 40 milljóna króna aukafjárveitingu hjá Akureyrarbæ á dögunum og fékk hana. Í raun þýðir gjörningurinn að félagið fær lán hjá sjálfu sér frá næsta rekstrarári sem þýðir að nú gengur á rekstrarféð. Hluti þeirrar upphæðar sem þarf að jafna er þó bundinn menningarsamningi við ríkið en ekki vandamálum í staðbundnum rekstri. \"Það hafa verið mikil uppgrip í listrænni framleiðslu en þetta er nýtt félag og innviðir rekstrarins reyndust ekki tibúnir til að halda utan um þetta allt eins og hefði þurft að vera. Nú eru nýjar áherslur frá því að nýr framkvæmdastjóri tók við. Forgangurinn núna er að ná jafnvægi í rekstri.\"

Sigurður Kristinsson segir að stjórn MAK sé nú að plana næsta starfsár í samráði við bæinn og sviðsstjórana. Ljóst sé að áherslan verði á að ekki verði eytt um efni fram en vonandi verði útkoman þannig að almennir bæjarbúar og aðrir sem vilji sækja, listir, menningu og afþreyingu á vegum MAK verði sem minnst varir við niðurskurðinn. Stjórn MAK fundaði í gær vegna fjárhagsstöðunnar. Heimildir Hringbrautar innan úr menningargeira Akureyrar herma að þáttur fyrrverandi framkvæmdastjóra MAK í taprekstri hafi mjög komið til skoðunar hjá stjórn félagsins.

Hvað fór úrskeiðis?

\"Það er ekki búið að rannsaka það þannig að við getum sett fingur á hvað fór helst úrskeiðis en áætlanagerð og bókhald var ekki tilbúið undir þetta allt saman, þess vegna var ráðist í verkefni án þess að menn vissu rekstrarforsendur, stjórnin fékk ekki þær upplýsingar sem hún óskaði eftir mjög lengi og treysti ekki þeim upplýsingum sem komu.\" Sigurður vill taka fram að tapið sé ekki bundið leiklistinni, leiklistarsviðið hafi sýnt \"mikla ábyrgð í sínum rekstri\" eins og hann orðar það.

Átti að tryggja öruggan rekstur

Þegar Akureyri vikublað vann undir ritstjórn þess sem hér skrifar úttekt á framtíð MAK og ráðningum þungavigtarfólks í desember árið 2014 var Sigurður Kristinsson spurður að eftirfarandi: 

Verða launakjör gagnsæ eða er rétt sem heyrst hefur að “stjörnuráðningar” bjóði upp á yfirborganir? Að ráða svo marga nýja toppa virðist einnig umdeilt. Sumir segja að þetta sjúgi fé frá listinni sjálfri “allt fari í báknið” – einnig er sagt að þessi leið ykkar minnki yfirbyggingu og spari kostnað- hvað er rétt og rangt í þeim efnum?

Þá svaraði Sigurður: \"„Þetta er af og frá og gott að fá tækifæri til að leiðrétta þetta hér. Lykilmarkmið sameiningarinnar er að stuðla að öruggum rekstri og góðri meðferð og nýtingu opinberra fjármuna. Við sameininguna fækkar stöðugildum um 20% frá því sem var þegar félögin þrjú störfuðu hvert í sínu lagi þannig að samlegðaráhrifin eru mikil, ekki bara listrænt og faglega heldur líka rekstrarlega. Þessi hagræðing verður nýtt beint í listina sjálfa þannig að það væri nær að tala um að sameiningin sjúgi fé frá yfirbyggingunni og í listina. Launakjör eru í samræmi við BHM-taxta og engar yfirborganir. Þetta kom umsækjendum ekki á óvart enda vissu þeir að félag eins og MAk hefur ekki svigrúm til slíks. Það er enginn að taka við starfi hér vegna ofurlauna eða gylliboða heldur eru það verkefnin sjálf og tækifærin sem bíða sem laða fólk til þessara mikilvægu starfa í þágu menningarlífs á Norðurlandi.“

Frétt: Björn Þorláksson.