Stjórn Miðflokksfélags Reykjavíkur (MFR) hefur tekið ákvörðun um að stillt verði upp á framboðslista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík sem verða laugardaginn 26. maí n.k.
Miðflokksmenn auglýsa nú eftir þeim sem kynnu að hafa áhuga á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins, en lokafrestur til að skila inn framboðum er klukkan 12:00, laugardaginn 17. febrúar n.k.
Í tilkynningu frá flokknum í morgun segir að þann 24. febrúar muni svo stjórn MFR kynna 6 efstu frambjóðendur á framboðslistanum.