Miðlum visku okkar til gesta landsins!

Það er ekki úr vegi að við, sem landið byggjum með alla okkar reynslu og þekkingu, miðlum visku okkar til gestanna sem sækja okkur heim. Það er á ábyrgð okkar allra að láta lífið snúast á farsælan, eðlilegan hátt og allir komi heilir heim. Það markmið gæti náðst ef allir leggjast á eitt.

Þetta skrifar Smári Sigurðsson nýr formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar á fésbókarsíðu sína og fjallar þar um breytta ásýnd Íslands með stórfjölgun ferðafólks og aukinni ásókn Íslendinga í fjöll sín og firnindi. Hann hvetur alla landsmenn til að fylgjast með vefslóðinni safetravel.is og benda öllum útlendingum á hana, en þar megi finna margvíslegar upplýsingar um ferðalög og aðstæður til ferðalaga og þar megi einnig skilja eftir ferðaáætlun sem sé mikilvægt þegar ferðast er utan alfaraleiðar. Vefurinn, sem rekinn er af björgunarsveitum landsins er á íslensku og ensku og eiga flestir að geta sótt þangað upplýsingar og fræðslu um örugga ferðamennsku.

Smári skrifar: \"Bílafjöldi landans er á svipuðu róli og verið hefur síðasta áratuginn en samsetningin breyst; húsbílum hefur fjölgað verulega í umferðinni, tjaldvagnarnir eru orðnir að fellihýsum og gömlu fellihýsin að hjólhýsum. Að auki hefur fjöldi hópferðabíla og bílaleigubíla með erlenda ökumenn margfaldast á þjóðvegunum síðustu ár.\"

Og hann varpar fram nokkrum áleitnum spurningum: \"Hvernig ætli erlendir gestir okkar séu undirbúnir að aka um þrönga þjóðvegi eða hálendisvegi með stórum drullupollum, sandbleytu og óbrúuðum ám og lækjum? Eða þeir sem hyggjast reima á sig gönguskóna og halda til fjalla, t.d. ganga frá Mývatni að Skógum eða hring að Fjallabaki. Hafa þeir nægar upplýsingar um óvenju mikil snjóalög og erfiðari gönguskilyrði? Gerði auglýsingabæklingurinn ráð fyrir þessum breytum?\"

Formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar ítrekar að það sá á ábyrgð okkar allra að vara allt ferðafólk við þeim hættum sem felast í landinu og veðrunum sem leika um það - og að þar sé vefurinn safetravel.is öflugt öryggistæki.