Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, kæmist ekki inn á þing og Miðflokkurinn tapaði rúmum helmingi þingflokks síns ef kosið yrði til Alþingis nú ef marka má nýjan þjóðarpúls Gallup. Innan við helmingur svarenda í könnunni sagðist styðja ríkisstjórnina.
Framsóknarflokkurinn fengi engan þingmann kjörinn í Reykjavíkurkjördæmunum þrátt fyrir að hann bæti við sig fylgi miðað við niðurstöður könnunarinnar. Hann fengi samtals sjö þingmenn, sex úr landbyggðarkjördæmum og einn úr Kraganum, að því er kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins.
Stuðningur við Miðflokkinn hefur dregist töluvert saman. Þannig fengi flokkurinn aðeins þrjá menn kjörna en hann hefur nú sjö menn á þingi.
Ríkisstjórnin mælist með stuðning 45% svarenda. Saman fengju ríkisstjórnarflokkarnir þrír 30 þingmenn kjörna og væri því fallin. Allir myndu þeir tapa þingmönnum en Viðreisn og Píratar bæta við sig
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190109602