Forkólfar stjórnmálaflokkanna sem hyggjast bjóða fram í borgarstjórnarkosnigunum í vor fara ólíkar leiðir að því að velja fólk á lista sína - og er þar Miðflokkurinn engin undantekning sem auglýsir einfaldlega eftir áhugasömu fólki sem vill fylkja sér að baki leiðtogans, Vigdísar Hauksdóttur.
Svona hljóðar alltént tilkynning flokksforystunnar í dag: \"Eins og áður hefur komið fram þá ákvað stjórn Miðflokksfélags Reykjavíkur (MFR) að stillt verði upp á framboðslista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík sem verða laugardaginn 26. maí n.k. Þeir sem höfðu áhuga á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins voru beðnir um að hafa samband fyrir lokafrestinn klukkan 12:00, laugardaginn 17. febrúar s.l. Í dag, 24. febrúar mun svo stjórn MFR kynna efstu frambjóðendur á framboðslistanum sem koma á eftir Vigdísi Hauksdóttur, oddvita framboðslistans. Kynningin mun fara fram að Suðurlandsbraut 18, klukkan 14:00\"