„Á fundi Skipulags- og samgönguráðs í gær mættu nokkrir Sjálfstæðisflokkar sem allir voru ósammála hvor öðrum. Tillaga um Laugaveg sem göngugötu var til afgreiðslu á fundinum og hana samþykktu tveir fulltrúar flokksins en á móti var Marta Guðjónsdóttir.“
Þetta segir Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata. Midjan.is gerði sér mat úr málinu. Þar er vitnað í Sigurborgu sem segir að Hildur Björnsdóttir og Katrín Atladóttir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi bókað eftirfarandi:
„Fulltrúarnir fagna nýrri útfærslu enda tekur hún tillit til framkominna athugasemda um skipulagið.“ en Marta bókar: „Það kallast svikasamráð en ekki raunverulegt samráð,“ um tillöguna.“
Sigurborg segir að áður hafi Marta samþykkt þessar hugmyndir ásamt öðrum flokksfélögum sínum sem hafi kosið með því í september 2018 en sú tillaga var eftirfarandi:
„Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- skipulagssviði að gera tillögu að útfærslu Laugavegs og Bankastrætis sem göngugötur allt árið ásamt þeim götum í Kvosinni sem koma til greina sem göngugötur.“
Sigurborg heldur áfram: „Á fundinum gær var fjallað um tillögu Sjálfstæðisflokksins um að birta ekki efni úr rafrænum eftirlitsmyndavélum á́ vefsíðu aðgengilega öllum eins og hefur verið. Með voru Hildur og Katrín en á móti var Marta sem líkt og í öðrum málum þar sem á greinir, hallar sér upp að Miðflokknum.“
Þá segir Sigurborg: „Tekin var fyrir fyrirspurn frá Seltjarnanesbæ á fundinum. Þar kom glöggt í ljós að Miðflokksarmi Sjálfstæðisflokksins er mjög umhugað um íbúa Seltjarnarness. Hvaða sveitarfélag myndi láta bjóða sér það eins og Seltirningar mega þola að hafa 40 km hámarksakstur út úr sveitarfélaginu á stofnbraut í stað þess að Reykjavíkurborg greiði fyrir Vegagerðinni með þverun gatna fyrir gangandi og hjólandi með göngubrúm eða undirgöngum. Þetta er óviðunandi ástand – Seltjarnarnes er fangi Reykjavíkur í umferðarmálum.“
Sigurborg endar svo pistil sinn með því að benda á margar hliðar Sjálfstæðisflokksins. Hún segir:
„Já, ef einhver er í vanda með að átta sig á málinu þá snýst bókun Miðflokksins og Miðflokksins í Valhöll um að óásættanlegt sé að íbúar Seltjarnarness þurfi að virða öryggi og umferðarreglur vegna þess að þau eru að fara úr sveitarfélaginu sínu.
Já, það eru margar hliðar á Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.“