Miðflokkurinn hreykir sér út af málþófi: sjáðu myndina - „aldrei verið svona einbeittur hópur á þingi“

Miðflokkurinn hefur haldið málþófi áfram og setti met í morgun þegar í ljós kom að þingfundur hafði staðið yfir í rúman sólarhring. Það hefur orðið til þess að þing mun standa fram á sumar og ýmis brýn mál sem bíða afgreiðslu. Stjórnarandstaðan vill núna setja Orkupakkann síðast á dagskrá. Hugmynd sem forsætisráðherra er ekki hrifinn af og telur að geri lítið gagn. Þá hefur Steingrímur J. Sigfússon forseti alþingis sagt að hann hafi ýmislegt í hyggju til að bregðast við málþófi þingmanna Miðflokksins. Hann vill ekki tiltaka hvað það er en segir:

„Þið skuluð bara fylgjast með.“

Miðflokkurinn birti svo mynd nú fyrr í dag og ljóst að þingmenn flokksins ætla sér að halda ótrauð áfram. Þau segja:

Þingfundi var frestað klukkan 10:47 í morgun en fundurinn hófst 10:30 í gær. Fundurinn stóð því í sólarhring og korter.

-Aldrei áður hefur þingfundur staðið jafn lengi.
-Aldrei áður hefur verið verið fundað eins lengi fram á morgun.
-Aldrei áður hefur farið fram eins löng samanlögð umræða.
-Aldrei áður hefur slíkum aðferðum verið beitt til að reyna að stöðva umræðu.
...En það hefur heldur aldrei verið svona einbeittur hópur á þingi.
Það er bjart yfir þeim.

Eftir að umræðu var frestað í morgun stilltu nokkrir þingmenn flokksins sér upp fyrir fjölskyldumyndatöku.