Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup eykst fylgi Miðflokksins um tvö prósent milli mánaða, og mælist það nú níu prósent, jafnt Framsóknarflokknum. Fylgi annarra flokka breytist lítið frá síðustu mælingu Þjóðarpúlsins, eða um 0 - 0,9 prósent.
25 prósent þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag, nær 16 prósent Samfylkinguna, tæplega 12 prósent Vinstri græn og sama hlutfall myndi kjósa Pírata.
Rúmlega 10 prósent segjast myndu kjósa Viðreisn, níu prósent Framsóknarflokkinn, níu prósent Miðflokkinn, fjögur prósent Sósíalistaflokkinn og tæplega fjögur prósent Flokk fólksins.
Rúmlega 13 prósent segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag og tæplega 10 prósent taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp.
Niðurstöður Þjóðarpúls Gallup um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup framkvæmdi dagana 1. til 31. mars 2019. Heildarúrtaksstærð var 6.705 og þátttökuhlutfall var 55,4 prósent. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,2 - 1,6 prósent. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.