Miðflokkurinn bætir við sig en píratar tapa fylgi

Samkvæmt nýrri könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna kemur fram að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um rúmt prósentustig frá í byrjun mánaðarins og mælist nú 21,3%. Samfylkingin mældist með 13,9% fylgi, sem er nær óbreytt frá síðustu könnun. Þá minnkaði fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkaði um rúmlega tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingu.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði um um rúm fjögur prósentustig og mældist nú 40,9% en var 40,4% í síðustu mælingu.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,2% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,8% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,6% og mældist 9,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,8% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,4% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,2% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,4% samanlagt.

Könnunin var framkvæmd 14. - 16. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 978 einstaklingar, 18 ára og eldri.