Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags-og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, tjáir sig um nýjasta fund ráðsins á Facebook síðunni sinni. Þar segir hún að nokkrir Sjálfstæðisflokkar hafi mætt sem allir voru ósammála hvor öðrum.
Hún segir að á fundinum hafi tillaga um Laugaveg sem göngugötu verið tekin til afgreiðslu. Hana samþykktu tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins en á móti var Marta Guðjónsdóttir.
„Hildur Björnsdóttr og Katrín Atladóttir bókuðu: „Fulltrúarnir fagna nýrri útfærslu enda tekur hún tillit til framkominna athugasemda um skipulagið.“ en Marta bókar: „Það kallast svikasamráð en ekki raunverulegt samráð,“ um tillöguna,“ skrifar Sigurborg.
„Reyndar hafði Marta áður samþykkt þessar hugmyndir ásamt flokksfélögum sínum í sem kusu með því í september 2018. Sú tillaga segir: „Borgarstjórn samþykkir að fela umhverfis- skipulagssviði að gera tillögu að útfærslu Laugavegs og Bankastrætis sem göngugötur allt árið ásamt þeim götum í Kvosinni sem koma til greina sem göngugötur.“
Marta halli sér upp að Miðflokknum
Hún segir að þá hafi verið fjallað um tillögu Sjálfstæðisflokksins um að birta ekki efni úr rafrænum eftirlitsmyndavélum á vefsíðu aðgengilega öllum eins og verið hefur. Segir Sigurborg að Hildur og Katrín hafi verið með en Marta á móti, „sem líkt og öðrum málum þar sem á greinir hallar sér upp að Miðflokknum.“
„Tekin var fyrir fyrirspurn frá Seltjarnanesbæ á. fundinum. Þar kom glöggt í ljós að Miðflokksarmi Sjálfstæðisflokksins er mjög umhugað um íbúa Seltjarnarness.
„Hvaða sveitarfélag myndi láta bjóða sér það eins og Seltirningar mega þola að hafa 40 km hámarksakstur út úr sveitarfélaginu á stofnbraut í stað þess að Reykjavíkurborg greiði fyrir Vegagerðinni með þverun gatna fyrir gangandi og hjólandi með göngubrúm eða undirgöngum. Þetta er óviðundandi ástand – Seltjarnarnes er fangi Reykjavíkur í umferðarmálum.“
Marta segir að lokum að bókun „Miðflokksins og Miðflokksins í Valhöll“ snúist um að óásættanlegt sé að íbúar Seltjarnarness þurfi að virða öryggi og umferðareglur vegna þess að þau séu að fara úr sveitarfélaginu sínu. „Já það eru margar hliðar á Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.“