Miðaverð allt að 140 þúsund krónur

Það er ekkert venjulegt verð sem sett er upp í miðasölunni í Hörpu vegna ráðstefnu í tengslum við 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi. Miðaverðið í forsölu er tæplega 110 þúsund krónur en fer upp í 140 þúsund krónur þegar henni sleppir.


Ráðstefna, sem haldin verður í Hörpu í sumar, ber heitið Inspirally WE 2015, en meðal þátttakenda verða Geena Davis leikkona og Christine Lagarde forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.Ráðstefnan er aðgengileg öllum svo fremi þeir reiði fram téða upphæð sem verður að teljast í hærri kantinum ef litið er til annarra veglegra ráðstefna sem haldnar hafa verið hér á landi á undanförnum árum, þar á meðal þensluárið 2007 þegar peningar virtust aukaatriði þegar samkomur voru annars vegar.


Á vefsíðu ráðstefnunnar er áhugasömu fólki gefinn kostur á að leggja þeim einstaklingum lið sem ef til vill eiga ekki fyrir ráðstefnumiðnaum.


Meðal íslenskra þátttakenda á ráðstefnunni má nefna Jón Gnarr, Gunnar Braga Sveinsson, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur.