Íranir munu örugglega bregðast með einhverjum hætti við drápinu á helsta herforingja sínum, en það gerist ekki endilega á morgun og ekki heldur næstu vikurnar, segir Bogi Ágústsson, einn reyndasti fréttamaður landsins í Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld.
Hann mætir í þáttinn ásamt Davíð Stefánssyni, ritstjóra Fréttablaðsins, sem einnig er sérfróður um erlend málefni - og þeir eru sammála því að atburðir síðustu daga séu sennilega ekki sá vendipunktur sem hægt er að lesa úr sterkustu fréttafyrirsögnunum, styrjaldarlíkur séu litlar en störukeppnin haldi áfram.
Í þættinum er rýnt í persónuleika Qasem Soleimani, æðsta yfirmanns Quds, hersveita íranska byltingarhersins, sem líklega var næstur æðstaklerki landsins að völdum - og einn áhrifamesti maður Miðausturlanda, en hann rak og framkvæmdi utanríkisstefnu Írans í flestöllum nágrannalöndum gömlu Persíu. Og hann steig metorðastigann hratt, fátækur sveitastrákur utan af landi, lítt menntaður, varla herþjálfaður, en hefur sakir stjórnvisku, ófyrirleitni, hörku og heppni stjórnað Quds í hartnær aldarfjórðung, allt þar til auðnan yfirgaf hann á dögunum og bandarískir hermenn réðu hann af dögum með drónaárás á flugvellinum í Bagdad í Írak.
Það er einkar upplýsandi og fræðandi að hlusta á þá Boga og Davíð miðla af sérfræðiþekkingu sinni í Ritstjórunum í kvöld sem byrja klukkan 21:00.