Miðaldra konur fela drykkjuna heima

Það er of mikið fókúserað á unga fólkið í forvörnum og fræðslustarfi sagði Vilhjálmur Svan Jóhannsson í þættinum ,,Fólk með Sirrý" þar sem rætt var um áfengisvandann í samfélaginu við fólk sem kosið hefur að setja tappann í flöskuna.


Vilhjálmur sem sjálfur man tímana tvenna og ,,var bjargað upp úr ræsinu með kíttispaða þegar hann var þrítugur," eins og hann orðaði það í þættinum segist vita með vissu að inn á fjölda heimila hjá fullorðnu fólki, er annar aðilinn, oft konan "í miklum hryllingi út af drykkju í felum."  


Helga Braga Jónsdóttir leikkona og flugfreyja sagði líka í þættinum að eldra fólk væri líklegra til að drekka of mikið í flugi á leið til útlanda. Þetta hafi breyst til batnaðar hjá yngra fólki. Og Helga Braga bætti við glöð i bragði að hún væri alltaf ,,voðalega fegin að hafa kvatt áfengi þegar hún er innan um öskrandi fullar konur".


Sif Gunnlaugsdóttir sagði frá því í þættinum að hún hefði farið í kvennameðferð hjá SÁÁ fyrir 16 árum og vorkenndi í dag ungum stúlkum því þær væru ekki látnar vera þegar þær færu út að skemmta sér, alltaf sé verið að banka í þær og spyrja; ,,hvað, ætlarðu ekki að fá þér í glas, ertu ólétt?"


Allir viðmælendur Sirrýjar voru sammála um það að tónlistarmaðurinn og hagfræðingurinn Jón Jónsson væri frábær fyrirmynd fyrir ungt fólk. ,,Jón Jónsson predikar ekki heldur sýnir með lífi sínu að það er flottur valkostur að drekka ekki og að lífið er spennandi án áfengis," sagði Róbert Marshall þingmaður í þættinum. 


Þáttinn er hægt að horfa á með því að smella hér.