Mick jagger drekkur íslenskt vatn

Rokkhljómsveitin Rolling Stones mun halda tónleika á Kúbu þann 25.mars næstkomandi og kemur íslenskt vatn kemur til með að leika stórt hlutverk á þessum tónleikum, því allt vatn sem Mick Jagger og félagar munu nota á tónleikunum kemur frá Icelandic Glacial.

\"Þetta er virkilega spennandi samstarf, bæði mun hljómsveitin vera með vatn frá okkur og allir baksviðs sem og tónleikagestir. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á erlent vatn á Kúbu,”segir Jón Ólafsson stjórnarformaður Icelandic Glacial.

Talskona hljómsveitarinnar er fyrirtækinu afar þakklát fyrir þeirra framlag til verkefnisins: \"Þetta er rausnarlegt og frábær viðbót við viðburðinn og jafnframt í fyrsta sinn sem erlent vatn er í boði á Kúbu og í fyrsta sinn sem Rolling Stones leika þar,” segir Fran Curtis. Tónleikar eru liður í opnun Kúbu og jafnframt hluti af tónleikaferðalagi Rolling Stones um Suður-Ameríku.\"