\"Þetta kom verulega á óvart, við vorum ekki einu sinni búnir með lagið,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo sem nú á lag í spánnýjum þáttum HBO úr smiðju sjálfs rokkhundsins Micks Jagger og Martins Scorsese stjörnuleikstjóra sem nefnast Vinyl.
Lagið prýðir nú þegar auglýsingar þáttanna sem eru væntanlegir til sýningar í febrúar á næsta ári, eins og fram kemur í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í dag sem fyrst segir frá þessari merkilegu upphefð mosfellsku sveitararinnar sem hefur starfað um nokkurt skeið í Ameríku.
\"Ég fékk bara símtal í síðustu viku þar sem mér var sagt að Jagger og Scorsese vildu fá að máta lagið við nýja þáttaröð. Við höfðum þá alls þrjá daga til að klára það,“ segir Jökull við blaðið og skellir upp úr, en sveitin er nú í miðju tónleikaferðalagi vestanhafs.
\"Ég varð bara að hoppa inn í næsta hljóðver í Pittsburgh og taka upp sönginn, svo það var óhjákvæmilegt að beila á þrennum tónleikum, því miður, en ég vona að við getum heimsótt þessa staði sem fyrst aftur og bætt þetta upp,“ útskýrir hann í umræddri frétt, en menn biðja Jagger væntanlega seint að hinkra örlítið: \"Persónulega fannst mér þetta hálf óþægilegt, ég er ekki hrifinn af að gera svona á síðustu stundu. En vissulega er þetta magnað tækifæri,“ segir kappinn og er spurður hvort þeir félagarnir eigi von á að hitta Jagger og Scorsese? \"Það verður bara að koma í ljós, en það yrði ofboðslega gaman. Við fórum einmitt á tónleika með Rolling Stones í júní, og ég get fullyrt að þeir eru ekkert orðnir lúnir,“ svarar Jökull í Fréttablaðinu í morgun og hlær við.