Yrsa Sigurðardóttir er gestur í ,,Fólki með Sirrý\" á miðvikudag og segir að hún lesi ekki sakamálasögur eftir aðra íslenska höfunda. ,,En ég á margar þessara bóka og ætla að lesa þegar ég hætti að skrifa\" segir Yrsa í þættinum. Hún segist myndi taka verkfræðina fram yfir ritstörf ef hún þyrfti að velja annað hvort. Í þættinum ræða metsöluhöfundarnir Yrsa og Ragnar Jónasson um tvöfalt líf sitt. Hverju sleppa þau til að komast yfir öll sín verkefni? Í þættinum sést að á heimili Yrsu fer ekki mikið fyrir eldamennsku eða sjónvarpsáhorfi og Ragnar semur sakamálafléttur eftir að hafa svæft dætur sínar.
Yrsa ræðir líka um einelti sem spilar stóra rullu í nýjustu bókinni hennar ,,Aflausn.\" Hún segir sakamálaformið henta vel til að taka á einverju jafn ömurlegu fyrirbæri eins og einelti. Það gefi kost á því að velta upp ýmsum hliðum á slíku máli þó vissulega sé það ekki lausn að drepa gerendur eineltis eins og í skáldsögunni. Þátturinn er á Hringbraut miðvikudag kl. 20:30 og endursýndur um helgina.