#metoo nýtur mikils stuðnings

MMR hefur birt niðurstöður könnunar á afstöðu landsmanna gagnvart #MeToo umræðunni.

Helstu niðurstöður eru þessar:

-          Af aðspurðum sögðust tæplega 71% telja #MeToo umræðuna vera jákvæða fyrir íslenskt samfélag en 13% töldu hana neikvæða.

-          Konur (82%) voru líklegri en karlar (60%) til að telja umræðuna jákvæða en 46% kvenna sögðust telja hana mjög jákvæða fyrir samfélagið.

-          Íbúar höfuðborgarsvæðisins (74%) voru jákvæðari gagnvart #MeToo umræðunni heldur en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni (64%).

-          Stuðningsfólk Samfylkingar (87%) og Vinstri grænna (91%) var líklegast allra til að telja #MeToo umræðuna vera jákvæða fyrir íslenskt samfélag. Þá var stuðningsfólk Miðflokks (32%), Sjálfstæðisflokks (22%) og Flokks fólksins (16%) líklegast til að segja umræðuna neikvæða fyrir samfélagið.

 

Könnunin var framkvæmd dagana 16. til 22. maí 2018 og var heildarfjöldi svarenda 929 einstaklingar, 18 ára og eldri.