Metmótmæli vegna sprengisandslínu

Mun fleiri hafa nú þegar mótmælt Sprengisandslínu en Kárahnúkum þótt skammt sé síðan stofnað var til undirskriftaátaks. Stefnir í að Sprengisandslína verði ein umdeildasta umhverfishugmynd Íslandssögunnar.

Rúmlega 1100 höfðu mótmælt Sprengisandslínu með undirskrift um sólarhring eftir að Landsnet hóf átakið. Því lýkur á þriðjudag. Ef umdeildasta umhverfisframkvæmd Íslandssögunnar til þessa, Kárahnúkar er borin saman við átakið nú, er niðurstaðan að 362 athugasemdir bárust vegna Kárahnúka frá Íslendingum, 47 frá erlendum aðilum og allnokkrar athugasemdir eftir að athugasemdafresti lauk, alls 495 athugasendir.  Nú stefnir í þúsundir áskorana vegna Sprengisandslínu.

Landsnet lagði fram tillögu sína að matsáætlun fyrir umhverfismat 220 kV háspennulínu yfir Sprengisand. Skipulagsstofnun hefur tillöguna til umfjöllunar og hefur óskað eftir athugasemdum við hana í síðasta lagi 17. nóvember n.k.

Landvernd hratt af stað undirskriftaátaki til að mótmæla Sprengisandslínu þar sem meginkrafan er að Landsnet hf. falli frá áformum um Sprengisandslínu og að Skipulagsstofnun hafni matsáætlun fyrirtækisins.

Áskorunin er eftirfarandi: „Ég skora á Landsnet hf. að falla þegar í stað frá áformum fyrirtækisins um Sprengisandslínu og krefst þess að Skipulagsstofnun hafni áætlun þess um umhverfismat línunnar.“

Landsnet segir að Sprengisandslína myndi kljúfa landslagsheildir og víðerni miðhálendisins í tvennt, skerða upplifun ferðamanna og möguleika á útivist og ferðaþjónustu. „Hálendið eins og við þekkjum það í dag, myndi tilheyra fortíðinni. Mun fleiri eru andvígir Sprengisandslínu (43%) en fylgjandi (25%) samkvæmt könnun Gallup í mars 2015. Kanna ber einnig aðrar línuleiðir en um Sprengisand.“