Metfjöldi útskrifaðra frá virk árið 2018

VIRK starfsendurhæfingarsjóður útskrifaði metfjölda einstaklinga á síðasta ári. Alls luku 1.367 einstaklingar starfsendurhæfingarþjónustu frá VIRK á árinu. Einnig komu metfjöldi einstaklinga  nýir inn í þjónustu hjá VIRK á síðasta ári, alls 1.961. Hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VIRK.

Í tilkynningunni segir að um áramótin hafi 2.260 verið í starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK og höfðu þá alls 14.663 leitað til sjóðsins frá haustinu 2009, þegar fyrsti einstaklingurinn hóf starfsendurhæfingu á vegum sjóðsins.

Meginmarkmið VIRK er að hjálpa einstaklingum sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests að efla starfsgetu sína og komast aftur í virka þátttöku á vinnumarkaði.

Árangur og ánægja

Fjárhagslegur og samfélagslegur árangur og ávinningur VIRK er mjög mikill þar sem sjóðurinn hefur á undanförnum árum skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. Alls hafa 8.716 einstaklingar útskrifast frá VIRK frá upphafi og tæplega 80% þeirra eru virkir á vinnumarkaði við útskrift, eru með vinnugetu og fara annað hvort beint í launað starf, virka atvinnuleit eða lánshæft nám.

Í tilkynningu VIRK er bent á að þennan árangur hafi utanaðkomandi aðilar staðfest en niðurstöður athugunar Talnakönnunar sýna að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2017 hafi numið um 14,1 milljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK hafi numið 12,6 milljónum.

Auk þess sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekningalítið mjög ánægðir með þjónustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu.

Sjónvarpsþættir Hringbrautar um VIRK

Linda Blöndal gerði starfsemi starfsendurhæfingarsjóðsins VIRK ítarleg skil í sjónvarpsþáttunum VIRK á Hringbraut í nóvember á síðasta ári. Alla fjóra þættina er að finna hér.